we make fire
25.04.2007 16:30:25 / bkcrew

Til hamingju með afmælið Benni!

Ég hef held ég aldrei upplifað jafn slow dag á burger, þetta er alveg hræðilegt.

Ármann er alveg hellaður og gerir ekkert annað en að fara á klóið á 5 min fresti til að kúka.

Grétar kíkti við áðan í gúddý fíling að fá sér whopper. Hrafnhildur kom líka og fékk sér panini máltíð, eina crispy máltíð og tvær máltíðir númer 20. Hún er bara FEIT!!!!!

Annars ekkert að gerast, nema Benni á afmæli. Til hamingju Benni!

 

Farið nú að vera duglegri við að blogga, síðan er bara alveg dauð.

Kv.

Lovísa sem er að deyja úr skítafýlu af Ármanni. 8|

p.s. Ármann nenniru að hætta að krota á allt hérna :^)


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 16:52:14 / bkcrew

Myndir

Hellú Hellú

Það eru komnar inn nýjar myndir, check it out

Kv. Lovísa


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 00:09:12 / bkcrew

Ohh ohh damn tooo thee Creeps!

Bletzig..Anna sest í ritstjórasætið að þessu sinni. Ég var að komast að dálitlu merkilegu, ég hélt virkilega að það væru páskar á morgun. Ég var allavega orðin mjög spennt að fá páskaeggið mitt en nei...:S
Í gær var smá staffapartý fyrir nokkra útvalda gesti heima hjá Lovísu. Æbbi reddaði veitingum og veigum og ég held að allir hafi skemmt sér vel. Sérstaklega Lovísa..:haha: Það var allavega eitthvað um drama, ölvun, dónasiði, dans, kartöflubáta og twister. Ég held að Ármann hafi drukkið mest..til hamingju kallinn ;) Nokkrir leynigestir mættu á svæðið, meðal annars Meme og Litli Pimpinn..eða hvað nick name-ið var, ég man það ekki. Snæji, Benni og Ármann hurfu upp úr miðnætti yfir á Klúbbinn ásamt Sigþóri. Síðan svona klukkutíma seinna kom Sigþór aftur out of nowehere. Ása er grunuð fyrir að hafa fyllt stofuna af hlátursgasi meðan Lovísa fyllti stofuna af öðruvisi gasi. Grétar mætti pimpin fresh að vanda og átti í einhverjum útistæðum með Björgu en það var nú bara áfengið að tala..allt í góðu þar. Síðan vorum við svo dugleg að taka til fyrir Lovísu og fylltum bæði eldhúsið, þvottahúsið og barnaherbergið af tómum bjórflöskum. Síðan verður bara hópferð á Sorpu og þaðan beint í Ríkið.
Þakka fyrir mig og alla hina:D8)

 Myndir koma fljótlega inn;)

 :!::!:DJ ANNA STERI :!::!: ( I can't pull that off can I?)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 12:58:41 / bkcrew

My last day...

 

 

Jæja seinasti dagurinn á Burger King í gær, þetta eru alveg svakaleg tímamót. Sorglegt en satt þá var Burger King nokkurn veginn my life! Annaðhvort var maður í vinnunni eða á leiðinni í vinnuna. Ég byrjaði þarna í lok maí 2004, ef ég man rétt 31.

Þegar ég byrjaði þá var bara einn staður, Smáralind. Ég vann þar alveg þangað til fyrir svona hvað..11 mánuðum? Ég er ekki alveg viss, en ég fór að sakna gamla fólksins sem vann í Smáralind og fór þangað, m.a. Frikka the King, MeMe, Danna Burger King, Grétar litli alki ;) og ég man ekki fleiri...Þegar ég byrjaði í ártúni var þetta skítahola, ég er ekki að ýkja, ætla bara að skella bláköldum veruleikanum framan í ykkur. Ég kenndi ártúningum hluti eins og; spreybrúsi, tuska, sópur og uppþvottavél. Það var enginn sáttur við mig í fyrstu en ég held að ég hafi kennt þeim að þrífa og þeir hafi kennt mér að slaka á. Þannig þetta varð svona 50/50 blanda. Síðan rann sá dagur upp að allt "gamla" fólkið byrjaði að hætta, mér fannst þetta svo sorglegt. Ég fór á burger smáralind um daginn og það þekkti mig enginn og ég þekkti engann! Ég hélt ég myndi fara að grenja..búin að eyða heilu og hálfu sumrunum og vetrunum þarna inni. Ég held ég hafi fengið ógeð á burger king seinasta sumar, þegar Frikki hætti. Hvar er gamanið ef að Frikki er ekki að vinna með manni? Ég allavega þraukaði út veturinn því að þetta er fínn peningur skal ég segja ykkur.

En semsagt, til að draga þetta saman. Ég er atvinnulaus í dag, er í Versló og veit ekkert hvað ég á að gera við "my spare time". Get náttlega núna gert meira við áhugamálin og svona þar til ég finn mér nýja vinnu. Ég er ekki að útiloka að ég muni ekki taka fleiri vaktir þarna, ég hef hvort eð er ekkert betra að gera núna..

En ég vil þakka öllum þeim sem kvöddu mig, komu í heimsókn, hringdu eða whatever. Sem voru hvað...Snæji sem kíkti í heimsókn hingað? Vil þakka öllum yfirmönnum og þá sérstaklega Ævari fyrir að kveðja mig seinasta daginn..hehmm. Hefðuð nú alveg getað sagt e-ð! T.d. "viltu ekki íhuga málið" þegar ég sagði upp. En ég ætla ekki að vera með neinn móral hérna..

Ég hef kynnst svo óóótrúlega miklu af skemmtilegu fólki að það er með ólíkindum. Sé allavega eftir fáum dögum á burger...

Eins og ég hef alltaf sagt "eitt sinn burger, ávallt burger" þú kemur alltaf aftur..(eins og hefur sannast með flesta starfsmenn) vona bara að mér takist að afsanna ;)

Kv. DJ Anna


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 20:40:05 / bkcrew

what's goin' oooon?

Góða kveldið, Anna María hér ;) ég ætla bara að binda enda á þessi leiðindi með þessu bloggi, það má í rauninni segja að þetta blogg sé ´Berlínarmúrinn :O en hvað um það..þeir sem ætla að ganga e-ð lengra í þessu máli gera það, aðrir halda friðinn. Ég vann bókstaflega geðveikan vinnudag í gær, en það var með sisco, benna, jóa og aroni. Þegar þetta teymi er saman er all hell loose get ég sagt ykkur. Þeir verða eins og lítil börn í dótabúð. Ég lenti einmitt í hóphumpi upp við ísvélina, síðan var spíkat championship hjá strákunum og það sem toppaði kvöldið var þegar Simmi kíkti í heimsókn, Jói..við erum með nr hans in case you change your mind ;) we know you loooooove him:* ég ætla bara að taka það fram að salan í gær var svo lítil að við höfðum alveg efni á svona bellibrögðum. Btw fólk ég var með vaktina, ekki fkn skamma benna fyrir shit!!! :@ Ég frétti það fy´rir víst að ég er strákur, jebb karlkyns, ég ætla ekkert að tjá mig meira um þetta þið spjallið bara við aron um þetta. Eða nei annars ekki tala við aron, það fer út í e-ð rugl. En málið er að Aroni finnst ég vera svo strákaleg, sem er jú satt og að ég sé meira bara ein af stákunum..hehe jújú það má svosem. Svo er Sisco grounded for life fyrir að taka bíllyklana mína og færa bílinn minn í annað stæði, ég hef ekki hugsað upp refsinguna enn en hún mun pottþétt tengjast leðri..nei ég meina lakkrís. Uhh..ég er enn í versló já, féll í sögu með 4...fer á bilinu 15-19 i fjarnámspróf..jakk saga :( Á laugardaginn arkaði ég niður í bæ með Steina í snjókomu ef þið vitið hvað ég á við, ég ætlaði semsagt að vera driver fyrir systur mína en endaði bara með henni og vinum hennar á Pravda og þar var Dj Áki Pain að þeyta skífum, sem er btw nýji uppáhalds dj-inn minn. Hann var eilla bara með vocal house og allt lög sem eg vissi hvað hétu!! :D uss þetta var geggjað kvöld..Steini brást mér heldur ekki á dansgólfinu ;) en svo frétti ég seinna að benni hafi ætlað að fara þangað en fór á broadway..ég verð að fara að hringja meira í benna strákinn þegar maður er niðrí bæ, hann er náttlega alltaf þarna, ekki einu sinni að spurja sko. Ég er búin að vera að æfa mig á mixernum mínum, ég held ég sé búin að ná Snæja ;) muhhaha, eina sem er eftir er að setja saman eitt gott mix og henda því á ipodinn hans benna, þá er ég orðin fræg, Nei segi svona, en ég held ég sé alveg með þetta, en ég er nú ekki næstum eins góð og Áki Pain ;) hann Snæji er líka búinn að hjálpa mér fullt þannig I owe him :)  Jæja heimavinnan bíður og síðan bara sexy lover boy ;)

 Hver man ekki eftir íslendingnum Leoncie?hehe


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 01:30:02 / bkcrew

Nú er nóg komið..

Sæl öll.. Í dag, þann 29.desember 2006 höfum við flest á Burger King Ártúni fengið algjörlega nóg. Til dæmis er saga okkar Karlottu og Ármanns þannig að við byrjuðum öll á svipuðum tíma, í apríl, sem sagt fyrir 8 mánuðum og 3 mánuðum eftir fyrsta starfsdag okkar báðum við um launahækkun. Ég veit ekki með þau en mér var sagt að mér hefði verið veitt launahækkunin og ég var mjög spennt að sjá næsta launaseðil. Aftur á móti var engin breyting þar. Þannig ég hef samband við nokkra ónefnda aðila og þeir segja mér að það komi bara á næsta seðli. Þetta hefur mér verið sagt í 5 mánuði og engin breyting hefur orðið á. Nú hef ég gjörsamlega tapað þolinmæðinni og ætla að segja upp. Þriðjudaginn nk. ætla ég að fara upp í eflingu og tala við þau þar, athuga hvað ég geti gert í málinu.

Tölum ekki um skemmtilega staffapartýið sem ö-l-l-u-m á Burger King var boðið í.. Hahh það var nú frábært! Við mætum öll fín og sæt og ætluðum að skemmta okkur og kynnast fólkinu á Fridays en nehei! Við vorum rekin út.
Sögur segja að ákveðinn aðili á Fridays hafi hringt í Ævar og sagt honum að ekki hafi verið nóg til af bjór fyrir alla. Ævar segir þá þessum aðila að henda öllum á Burger King út, nema að vaktstjórarnir mættu vera. Auðvitað fóru allir vaktstjórarnir með út, þar sem þetta væri fáránlegt. Þótt svo að skiljanlegt væri að við yrðum rekin út, sem er það alls ekki, þá er nú algjör óþarfi að fá einhvern til þess að öskra af öllum lífs- og sálarkröftum í andlitin á okkur hve þroskaheft við værum og heimsk. Enda drukknaði ég næstum því í slummum sem maðurinn frussaði á mig á meðan öskrunum stóð..  Öll þessi svívirðilega framkoma undirstrikar einungis þá staðreynd að eigandi fyrirtækisins ber enga virðingu fyrir okkur sem starfsmönnum hans.
Ég veit ekki með ykkur hin en mér finnst þetta ólíðanleg framkoma og ég læt ekki vaða svona yfir mig.

-Súsanna..

» 15 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 20:57:05 / bkcrew

Þrælabúðirnar í Smáralind

Blessuð kiðlingarnir mínir, ég átti leið hjá burger í smáralind og ákvað að heilsa upp á fólkið. Það er snarvitlaust að gera hérna eins og vanalega. Ég fékk auðvitað hlýlegar móttökur frá Hannesi..en það var rauðlauk framan í mig. ´Ég fór að hugsa til núbbana í ártúni, skjárinn er stanslaust hálfur hérna, BLT, panini, fiskur, broila, salur, franskar name it. Áki virðist alveg vera með starfsmennina hérna í stuttri ól. Ég tók eftir einu, naggarnir pípuðu og einhver tók þá upp, hann náði sér í skúffu og setti þá á stock. Ég held bara því miður að ártúnsfólkið myndi nokkurn tímann gera það...þessir krakkar eru sko sannarlega að vinna fyrir kaupinu sínu, ekki alltaf vælandi um sígópásur á hálftíma fresti. Ég er alveg klárlega komin úr æfingu hvað varðar svona mikla sölu. Ég gleymi nú aldrei 99þús klukkutímanum míns og Magga á borðinu. Eða 200þús klukkutímum þegar við opnuðum fyrst. En það sem ég er að meina með þessu bloggi..hættiði að væla, veriði ánægð með það sem þið hafið. You don't know what you have until you loose it! :) Elska ykkur ártúnsfólk..sé ykkur á Friday's í kvöld! Anna María

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 17:57:43 / bkcrew

halló

Verkfall vegna jafnaðarkaups!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 21:00:39 / bkcrew

Technooooo!!! traaaaance..partý :D

Kemur einhver með mér á:

  • Exos og DJ Grétar á Broadway um áramótin?
  • Sander Kleinenberg...this is miami (8) (held í febrúar)

tékkiði á þessu á techno.is

and to all you techno freaks out there..we're gonna put the base in your motherf* face!! make some noise!!

Anna M.8):haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 01:33:19 / bkcrew

Snæjinn bara mættur :D

Jæææja sælt verið þér hamborgarafólk :D

J
æja fanst vera kominn svona smá tími fyrir mig að reyna við að blogga á þessa ofur síðu hérna hjá okkur í ártúninu.

Mig langar að benda ykkur á líka þennan Rooosalega Slúður dálk hérna hjá okkur sem er greinilega allveg að slá í gegn hjá unga fólkinu sem því gamla :D

Núna um jólin er ég að fara vinna eins og Kreizí man þannig þið eigið eftir að sjá nóg af mér held ég bara...

En Snæjinn Kveður og skilur ykkur eftir með brjálaðasta lagi sem til hefur verið:


Royksopp - What else is there (Trentemoller Remix)
(8)It was me on that road , but you couldn't see me , too many lights out , nowhere near me (8)


Free Image Hosting at www.ImageShack.us

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 17:03:10 / bkcrew

Óboðinn gestur!

Um daginn kom óboðinn gestur í bílalúguna hjá okkur, við vorum ekki sátt við þennan fund :S.


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 16:02:28 / bkcrew

Jáá halló :)

Já vegna þess að þessi síða er orðin svona frekar dauð og Anna María er eiginlega bara eini alvöru bloggarinn hérna ákvað ég bara að blogga smá að lífga aðeins upp á síðuna .. J

 

Jáá.. jólaprófin að byrja á föstudaginn hjá mér.. og ég hlakka ekki til. En svo fer ég á jólaball þann 14.des eftir prófin og svona J og þá verður bara gaman…:lol:  En jáá.. og síðan er ég að fara á Rockstar tónleikana :D haha á föstudaginn jeii ég hlakka til :)

og ég var að fá sendan launaseðilinn heim áðan og það var ekkert smá kósý að sjá Desemberuppbótina þar ;) hehe .. umm já, en ætla ekkert að hafa það mikið lengra :)

Ég bara sé ykkur öll svo bara á staffafundinum á laugardaginn ;*

Kveðja, Hrafnhildur Ýr :haha::haha::haha:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 00:48:17 / bkcrew

víííí jeij jeij

Fyrir hönd allra í ártúni viljum við óska Benna metro til hamingju ;) þetta eru ekki niðurstöðurnar sem við bjuggumst við:D

við elskum sisco


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 17:39:24 / bkcrew

eigum vér að bræla?

Sunnudagur genginn í garð og ný vika að byrja..það er búið að vera svo lítið að gera að ég virkilega vorkenni staðnum að þurfa að borga okkur laun fyrir að vera hérna. ´Við erum samt alveg búin að gera það sem er á to-do listanum og svona en inn á milli erum bið búin að taka nokkur góð skrifstofuchillsession og undirborðikúrisession, en það er bara gott og blessað. Í nótt þegar ég ætlaði að fara að sofa gat ég ekki sofnað og fékk þá símtal frá Danna sem var að vinna hérna og hann bað mig um að ná í sig á Hverfis, ég geri það því ég get ekki sofnað og hann ætlaði að láta mig fá bensínpening, líka fínt að hjálpa fólki sem er í vanda statt og er að deyja úti á götu. Jæja ég er komin þarna að verða 3 og hringi í Danna. Neinei þá er hann svo fullur að hann vissi ekki hvern hann væri að tala við og var svo kominn með far heim:!: það er ekki leyfilegt :whut: svo datt mér í hug að segja honum bara að koma með mér og ég myndi skutla honum heim þannig að ég græddi þó e-ð á þessu..en ég ákvað bara að fara heim að sofa, búin að tapa alveg 45 mín...já Danni ekki biðja mig um far næst;)

annars erum bara við sisco, aron og ármann hérna að chilla á launum..og einhver kind á leiðinni skildist mér:haha:

p.s. fannar óli er meistari blooperana, ´bíðið spennt þetta kemur allt á dvd í jólagjöf

Anna M.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 16:28:53 / bkcrew

Jeeeeess ...

Ég semsagt var að setja inn "Bloopers" eins og þið mörg vitið, og í fyrsta batchinu voru 3 video, Benni að cronka, pizzabruninn og svo Sindri að fljúga á hausinn. Nú var að bætast við það nýjasta, og það mun vera hin eina sanna Hrafnhildur að fljúga á hausinn :D ... ég er að safna þessum videoum á tölvuna mína, og þegar ég er kominn með nóg af þessum videoum, þá fara þau öll á DVD og beint í jólasokkinn hjá starfsmönnunum. Nú er að hafa augun opin fyrir skemmtilegum atvikum, og láta mig eða Önnu Maríu vita með dagsetningu og tíma, og við seivum þetta og gerum ódauðlegt :) ... Allir að hjálpast að !!!

        - Márus


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6